mánudagur, desember 01, 2008

þvottavél

þetta er alveg ótrúlegt haldið þið ekki að þvottavelinn hafi gefið upp öndina...ekki gat hún beðið þangað til eftir jól :( ekki það að þessi elska er búin að standa sig vel 4 ár er bara nokkuð góður tími miðað við hvað er mikill þvottur hér...ég er líka viss um að hún þoldi ekki að detta niður stigann þegar við flutttum hérna inn :)
en dugði samt i 5 mán eftir fall það er nú bara ágætt er það ekki?

Annars allt gott héðan, gat þvi miður ekki tekið myndir i gær i kirkjunni en það er aftur messa á sunnudag þar sem Jóa verður aftur i Santa Lúcia vonandi gengur það betur þá :)
knús og kram frá Dk

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já þvottavélar og önnur tæki eru sko ekki að spyrja að því hvenær henti fyrir þau að ljúka líftíma sínum, þekki það vona að þetta sé ekki smitandi. Knus knus m-amma

Nafnlaus sagði...

Þetta hlítur að vera smitandi,uppþvottavélin hrundi hjerna á Öldugrandanum um leið og uppvaskarinn kom í hús.Alli

Nafnlaus sagði...

það var þá gott að það var komin uppvaskari, þú gætir kannski komið hingað einu sinni i viku og þvegið þvott á þvottabretti og svo erum við líka með þennan fína gamla þvottapott fram i þvottahúsi

Nafnlaus sagði...

ekki málið, bara senda flugmiða einusinni í viku